föstudagur, apríl 28, 2006

Húrra fyrir mér.....

Jæja, þá er Viktólína loksins farin að mjakast af stað aftur, eitt kíló farið síðan ég fór að fara alveg nákvæmlega eftir danska kúrnum. Svo er ég byrjuð í smá keppni með nokkrum frábærum stelpum og hún gengur út á það hver verði fyrst til að missa 10 kíló frá síðustu viku og þetta er sem sagt fyrsta kílóið sem fer af mér eftir að sú keppni hófst.

Við ætlum svo saman út að borða þegar fyrsta er búin með 10 kíló og hún fær að borða á kostnað hinna. Ég ætla ekki að segja nöfnin hér en þær skrifa þá bara í komment hjá mér ef þær vilja upplýsa um þátttöku sína og reyndar hvet ég þær til þess því það er heilmikið aðhald ef vinir og vandamenn vita að maður er að reyna að ná árangri. Mikið hlakka ég til að fara út að borða á annarra kostnað :o) ;o) :o)

Annars er bara allt gott að frétta af mér, njótið daganna lesendur góðir,
þangað til næst........

3 ummæli:

Íris sagði...

Innilega til hamingju með kílóið! Þ.e. að það er farið ;)
Það er ekkert leyndó að ég er með í þessari keppni! Bara verst fyrir ykkur hinar að þurfa að borga matinn fyrir mig ;)
Sjáumst!!

Nafnlaus sagði...

Yeah right Íris.... Það verður ÉG sem vinn þessa keppni!!!! Ég er búin með 20% ;) ég skal sko vinna ykkur... En gaman að þetta er hörð samkeppni!! Hlakka til að fara saman út að borða samt.. Ég fer ókeypis.... HEHEHE.. Mamma til hamingju með kílóið :) Glæsilegt hjá þér ;) Eyglóin sem ætlar sér að vinna!!!!

Íris sagði...

Eygló, allt í lagi að halda í vonina þar til annað kemur í ljós ;) Því ég mun vinna þetta og það er engin spurning. En þú mátt alveg halda annað í bili :D koss og knús!!