sunnudagur, maí 16, 2010

Hann á afmæli í dag......


Eins og ég hef margsagt ykkur lesendur mínir þá er ég orðin ættmóðir margra og því eru oft afmælisdagar hjá mínu fólki og í dag er einmitt einn slíkur. Þar sem ég var í Kofanum um helgina þá kemur þessi afmælispistill óvenju seint inn.

Einn af þremur tengdasonum mínum fyllir árið í dag en það er hann Hafþór hennar Örnu og hann er 34 ára í dag. Það var seint síðastliðið haust sem Arna kynnti hann fyrir okkur Erling og okkur leist strax vel á hann. Hann var fljótur að vinna sér hylli þriggja dætra hennar Örnu og þær eru ánægðar með ráðahag móður sinnar. Hafþór er Eyjapeyi en hann er fæddur og uppalinn í Vestmannaeyjum en er nýfluttur til Reykjavíkur. Hann er rólegur en ákveðinn, er vélfræðingur að mennt og vinnur í vélsmiðju í Hafnarfirði auk þess að eiga og reka hljóð- og tækjaleigu í Vestmannaeyjum í samvinnu við félaga sinn.

Elsku Hafþór, um leið og ég óska þér innilega til hamingju með daginn vil ég þakka þér samveruna í dag, gaman að fá ykkur í heimsókn á eldfjallaslóðir við Föðurland.