mánudagur, apríl 09, 2012

Pabbi minn afmælisbarn dagsins



Ég er svo heppin að tilheyra stórri fjölskyldu og fyrir það er ég Guði þakklát. Því fylgja auðvitað margir afmælisdagar og sjálfsagt að fagna hverjum og einum þeirra því lífið sjálft er gjöf sem okkur er gefin. Í dag er það ættfaðirinn hann pabbi minn sem á afmæli, 73 ára gamall. Hann pabbi er bara frábær og er sérlega umhyggjusamur um okkur öll og finnst betra að vita hvar við erum sérstaklega ef veður eru válynd á heiðum. Þá hringir hann gjarnan til að vita að við séum komin örugg í hús og mér þykir mjög vænt um þessa umhyggju hans.

Hann fylgist líka vel með hvað við erum að bralla og spyr hvernig gangi t.d. með búðirnar okkar Erlings. Pabbi var lengst af bílstjóri á Hreyfli, var formaður félagsins í langan tíma og vann af miklum heilindum fyrir félagið. Hann spilar enn bridge með félögum sínum af stöðinni og það eru ófá verðlaunin sem hann hefur komið með heim eftir spilakvöld.

Afkomendur hans eru orðin vel á sjötta tuginn og því er þröng á þingi þegar við komum öll saman í litla ömmuhúsinu hans og mömmu en endalaust gaman samt. Litlu langafabörnin hans kalla hann Langa að hans eigin ósk og um daginn þá sagði ein ömmustelpan mín að hún elskaði Langa, langömmu og lang Írisi :)

Elsku pabbinn minn, innilega til hamingju með daginn þinn, efast ekki um að það verði dekrað smá við þig í dag og við sjáumst sem fyrst.



Elska þig endalaust



Erlan þín

laugardagur, mars 31, 2012

Marta Líf eins árs afmælisprinsessa



Það er alveg hreint ótrúlegt að það skuli vera komið heilt ár síðan litla (ekki samt minnsta :) ömmustelpan mín ákvað að skjótast í þennan heim á "Saga class" eins og mamma hennar orðaði svo skemmtilega. Ég var búin að fara í bæinn og sækja systkini hennar því það var ljóst að daman var um það bil að fara að láta sjá sig. Það var svo snemma kvölds sem Íris hringdi og spjallaði fyrst við eldri börnin sín og sagði okkur svo frá að daman hefði verið tekin með bráðakeisara en allt gengi vel og að þeim mæðgum heilsaðist vel. Hún fékk strax nafnið Marta Líf og er alger gleðigjafi inní líf okkar allra. Hún er alltaf svo brosandi og kát og yndisleg að það er enginn vandi að heillast algerlega af henni.

Stóru systkini hennar eru dugleg að leika við hana og eldri systurnar passa hana af kostgæfni.

Hún er dugleg stelpa og fer vel fram og hún er svo heppin að mamma hennar gat lengt fæðingarorlofið og unnið heima við svo sú stutta nýtur lífsins í dekri og þægindum.

Elsku litla yndigull, við afi þinn óskum þér til hamingju með daginn og hlökkum til að koma í afmælisveisluna þína. Við elskum þig endalaust litli gleðigjafi og hjartabræðari.

mánudagur, mars 12, 2012

Mamma afmælisskvísa



Elsku bestasta og yndislegasta mamman mín á afmæli í dag og þótt það trúi því fáir sem sjá hana þá er hún orðin 72ja ára gömul þessi unglega stelpa. Það var ekkert til sparað þegar Guð skapaði hana, henni var úthlutað óteljandi hæfileikum og fegurð og ég segi það enn og hef alltaf sagt að það er ekkert sem hún getur ekki gert þessi elska. Hún er svo sannarlega einstök kona og allir sem kynnast henni elska hana enda ekki annað hægt. Hún er ekki fyrirferðamikil kona en hún hefur breitt bak og hefur tíma fyrir alla sem leita til hennar og þeir eru sko ófáir. Ég er líka svo heppin að eiga hana ekki bara fyrir mömmu heldur erum við líka vinkonur og hún er alltaf til staðar fyrir mig og allt mitt fólk. Þar sem hún er hjúkka þá er auðvitað alltaf byrjað á að leita ráða hjá henni fyrst ef eitthvað kemur uppá enda hefur reynslan kennt henni svo margt og hún er oft á við besta lækni, getur allavega vel metið hvert á svo að halda næst ef það þarf að leita lengra.



Elsku mamman mín um leið og ég óska þér til hamingju með daginn þinn vil ég segja þér að ég er Guði svo þakklát fyrir að hafa valið þig til að vera mamman mín og ég er svo stolt af þér og elska þig milljón. Njóttu dagsins þíns í botn. Knús frá okkur Erling úr sveitinni

fimmtudagur, mars 01, 2012

Eygló og Arna afmælisstelpur



Ég man það eins og það hafi gerst í gær þegar ég fékk að vita að barnið sem við Erling áttum von á var ekki bara eitt heldur tvö. Í þá daga tíðkaðist ekki að feður færu með í sónar og því fórum við Íris, sem þá var rúmlega tveggja ára, tvær saman til Reykjavíkur með Akraborginni og mamma, þessi elska, sótti okkur á bryggjuna og keyrði mig upp á spítala í sónarinn. Þá var heldur ekki til sónar á öllum landsbyggðarsjúkrahúsum eins og er í dag og konur fóru ekki í sónar nema grunur væri um að eitthvað væri ekki alveg samkvæmt áætlun og í mínu tilviki hélt ljósan að ég væri gengi lengra með en dagatalið sagði. Mig grunar nú samt alveg að henni hafi grunað hvað þetta var en ekki viljað segja neitt um það. Við Erling áttum heldur ekki heimasíma og því höfðum við ákveðið að hann færi á símstöðina í hádeginu til að hringja í mig og fá fréttir. Hann stóð því í símaklefa og ég sagði honum frá tveimur börnum á leiðinni og hann missti málið, sagði ekkert og þá meina ég ekkert í eina til tvær mínútur og ég alveg...Erling, Erling ertu þarna?


Já það hefur margt breyst síðan þá en samt eru bara 31 ár síðan Eygló og Arna, tvíburadætur okkar fæddust. Þær elska að vera tvíburar en það má samt ekki tala um þær sem tvíbura og þegar þær voru litlar þoldu þær ekki ef krakkar komu og spurðu eftir "tvíburunum". Þær eru ótrúlega samrýmdar og hugsa oft eins og það er eins og það sé óskiljanlegur þráður á milli þeirra. Stundum dreymir þær sömu drauma sömu nótt. Þær hafa alltaf verið okkur miklir gleðigjafar og við erum ákaflega stolt af þeim. Þær vinna báðar á leikskóla en samt ekki sama og það á vel við þær að vinna með börnum. Eygló er gift honum Bjössa og þau eiga tvö börn, Erlu Rakel 3ja ára og Andra Ísak eins árs. Arna er gift honum Hafþóri og hún á þrjár dætur frá fyrra hjónabandi, Daníu Rut 9 ára, Söru Ísold 8 ára og Þórey Erlu 6 ára. Arna og Hafþór eignuðust svo litlu Hrefnu Björgu 21. febrúar sl og er hún því rétt um viku gömul og það munaði bara einum degi að hún fæddist á afmælisdegi Andra Ísaks frænda síns.


Elsku stelpurnar mínar, við pabbi ykkar óskum ykkur innilega til hamingju með daginn ykkar, við vitum að þið munuð njóta hans og við hlökkum til að hitta ykkur hér í sveitinni á laugardaginn. Við elskum ykkur meira en orð fá lýst.

mánudagur, febrúar 20, 2012

Andri Ísak afmælisstrákur



Ég er svo lánsöm að eiga mörg barnabörn, 7 stelpur og 2 stráka og í dag á annar af þeim afmæli er orðinn eins árs. Það er í raun alveg ótrúlegt að það skuli vera komið ár síðan við vorum að bíða þann sunnudag því við vissum að hann væri alveg að koma og mikið var nú gaman þegar símtalið kom loksins og flottur og fínn strákur mættur á svæðið. Foreldrar hans vildu ekki vita kynið fyrirfram og því var þetta enn meira spennandi dagur. Já hann Andri Ísak er orðinn eins árs og hann á eina stóra systur, Erlu Rakel 3ja ára, og stundum tekur hún utanum um hann og segist elska þennan kút, hrikalega krúttlegt. Andri Ísak er alger hjartabræðari og heillar alla í kringum sig. Hann er mikill mömmustrákur og mömmu hans leiðist það nú ekki því þau systkinin skipta sér á milli foreldranna því systir hans er alger pabbastelpa.


Elsku Andri Ísak, við afi þinn óskum þér innilega til hamingju með daginn þinn, þú ert alger Guðs gjöf inní líf okkar. Vonandi fer þér að batna af þessari leiðindaflensu svo það sé hægt að halda uppá daginn þinn. Við elskum þig endalaust litli kúturinn okkar

miðvikudagur, febrúar 15, 2012

Sara Ísold afmælisstelpa



Það er ekki ofsögum sagt að það er líf og fjör í kringum afmælisbarn dagsins, henni liggur mikið á að verða fullorðin enda sagði hún um daginn við mömmu sína þessa setningu: "Maður verður ótrúlega pirraður þegar maður fær unglingaveikina, maður verður slappur og allt." Þó er það svo að þessi unga dama er bara átta ára í dag en vildi nú helst vera 18 því þá gæti hún flutt að heiman og fengið sér bæði hest og hund en hún skilur ekkert í því að mega ekki fá þau dýr bara strax. Já það er hún Sara Ísold ein ömmustelpan mín sem fagnar einu árinu í viðbót í dag. Ég man vel símtalið sem kom þennan fallega sunnudagsmorgunn og okkur afanum tilkynnt um fæðingu hennar. Hún er skemmtileg og skýr stelpa með ákveðnar skoðanir á öllu og er mikill heimspekingur. Henni gengur vel í skólanum og er vel liðin þar og fær frábærar umsagnir. Í hennar augum er lífið alls ekki flókið. Hún ásamt systrum sínum er viku og viku hjá pabba sínum og svo mömmu sinni og núna eiga þær systur von á lítilli systur hjá mömmu sinni og Hafþór pabba. Henni finnst auðvitað ekki réttlátt að litla systir þurfi svo alltaf að vera bara hjá foreldrum sínum og fái ekki að fara neitt annað þannig að hún er búin að segja pabba sínum að auðvitað þurfi hann svo að taka litlu systur stundum þegar Arna og Hafþór verða þreytt. Svo var það fyrir stuttu að það barst í tal að þær væru líka sænskar og Sara Ísold hafi nú einhverjar áhyggjur af því að litla systir væri ekki líka sænsk en var svo snögg að finna lausnina því Doris, föðuramma þeirra, myndi auðvitað kenna litlunni sænsku. Um að gera að vera ekki að flækja málin neitt.






Elsku Sara Ísold okkar, við afi þinn óskum þér innilega til hamingju með afmælisdaginn þinn, við vitum að það verður dekrað við þig í dag. Þú ert alger Guðs gjöf inn í líf okkar og við elskum þig marga marga hringi.

miðvikudagur, janúar 25, 2012

Lifðu lífinu lifandi, vertu til, taktu þátt

Ég hef sagt það áður og segi það enn að ég elska lífið sjálft, enda er það dýrmæt gjöf sem okkur er gefin til þess að njóta. Lífið með öllum sínum fjölbreytileika er bara of skemmtilegt til að taka ekki þátt í því af fullum krafti. Auðvitað veit ég að það geta ekki allir gert það því stundum taka t.d. sjúkdómar af manni völdin. En það er samt oft með þá sem eru í fullu fjöri að þeir virðast bara áhugalausir um lífið og tilveruna, eru bara þarna, taka ekki þátt í neinu sem er um að vera kringum sig eru kannski alltaf að bíða eftir einhverju og þegar það er komið þá er gaman að vera til. Hamingjan er ekki endastöð heldur ferðalag og með því að vera alltaf að bíða eftir einhverju sem gerist seinna þá er svo mikil hætta á að missa af svo mörgu því hversdagurinn getur verið svo innihaldsríkur og skemmtilegur ef við bara gefum honum tækifæri. Stöldrum við og sjáum það sem er í vegi okkar, það er enginn vandi að ganga framhjá öllum fallegu steinunum (líkingamál) sem eru á vegi okkar ef við horfum alltaf langt fram í tímann. Það er samt auðvitað alltaf gaman að hlakka til einhvers og ég held reyndar að það sé nauðsynlegt að hafa eitthvað til að hlakka til eða langa að gera en þangað til það gerist er jafn nauðsynlegt að vera virkur þátttakandi í hversdagslífinu. Hafa gaman að því að vinna vinnuna sína, sjá það sem gleðiefni að það séu óhreinir diskar í vaskinum, óhreinn þvottur í þvottahúsinu, ryk á hillum því það táknar að það er líf í kringum okkur. Ef við höfum ekki vinnu þá eru ótal námskeið sem eru í boði og um að gera að nýta sér það. Tökum þátt í að gera lífið skemmtilegra, verum virk í hversdagslífi okkar, tökum þátt í samræðum, verum til, brosum til samferðarfólks okkar, heimsækjum hvert annað og látum okkur varða um annað fólk, þetta er svo stuttur tími sem við höfum á þessari jörð, notum hann. Ekki sitja ein eða einn úti í horni hvort sem er í kafftímanum í vinnunni eða í afmælum í fjölskyldunni og halda að "þau" kæri sig nú ekkert um mig eða mínar skoðanir, við erum sköpuð til samfélags við annað fólk og þínar skoðanir eiga jafn mikinn rétt á sér og allra annarra. Lifum lífinu lifandi meðan við eigum það, njótum þess að vera til, látum draumana rætast ef við mögulega getum.....já það er víst satt að Erlan elskar að vera til

laugardagur, janúar 07, 2012

Hrund afmælisstelpa

Það var sunnudagur eins og í dag og við vissum að þetta væri dagurinn sem fjórða barnið okkar Erlings myndi mæta á svæðið. Við vorum búin að ákveða bæði stúlku- og drengjanafn því við vissum ekki kynið á barninu. Það var svo rétt fyrir klukkan fjögur þann eftirmiðdag sem við brostum út að eyrum og buðum litlu yndislegu Hrund velkomna í heiminn. Já þótt ótrúlegt sé þá eru 23 ár síðan youngsterinn okkar leit dagsins ljós í fyrsta sinn, opnaði annað augað, sá föður sinn, leist vel á hann og hefur séð að hún var komin í öruggar hendur. Hún varð eftirlæti systra sinna allavega svona þangað til hún fór að skríða og laumast svo í dótið þeirra, þá gilti ekki lengur þetta "hún má alltaf leika með dótið mitt og allt það" sem sagt var á fyrstu dögunum hennar :)
Okkur foreldrum þeirra til mikillar ánægju eru þær miklar vinkonur allar í dag og eyða miklum tíma saman.


Hrund er hæfileikarík ung stúlka, fæddur leiðtogi og samkvæm sjálfri sér. Hún stundar sálfræðinám við Háskólann í Reykjavík og hefur kynnst þar fullt af skemmtilegum krökkum sem hún eyðir tíma með bæði við nám og skemmtun. Auk þess stundar hún söngnám og skrifar pistla á spegill.is.


Hún leigir íbúð hjá Námsmannaíbúðum en það er voða notalegt þegar hún kemur austur um helgar og eyðir tíma með okkur foreldrum sínum.


Elsku Hrundin okkar, við pabbi þinn óskum þér innilega til hamingju með daginn þinn, þú ert sama afmælisbarnið og mamman þín og haltu í það eins lengi og þú getur. Við elskum þig meira en hægt er að segja með orðum og erum afar stolt af þér.