föstudagur, apríl 09, 2010

Pabbinn minn....

Ég er svo heppin að tilheyra stórri fjölskyldu og fyrir það er ég Guði þakklát. Því fylgir auðvitað að afmælisdagar eru margir og mér finnst alltaf mikil ástæða til að fagna hverjum og einum þeirra því lífið sjálft er gjöf sem okkur er gefin. Í dag er það ættfaðirinn hann pabbi minn sem fagnar afmælisdegi sínum og núna í 71. sinn.Hann pabbi er alveg frábær og sérlega umhyggjusamur um okkur öll, vill alltaf vita þegar við erum á ferðinni og ósjaldan hefur hann hringt og athugað með mig og mitt fólk, hvort við séum örugglega komin heim í hús þegar veður eru válynd á heiðum eða þegar slys hafa gerst á þeirri leið sem við ökum til og frá vinnu þá hringir hann og athugar hvar við erum stödd.
Við erum kannski ekki alltaf á sömu skoðun og sem dæmi þá skyldi hann ekkert í vitleysunni í okkur Erling að vera að þvælast þetta upp á jökul þegar hægt var að sjá gosið miklu betur í sjónvarpinu. Ég var reyndar mjög fegin að hann vissi ekki af bylnum sem við lentum í fyrr en daginn eftir. Hins vegar þykir mér mjög vænt um þessa umhyggju hans.

Pabbi var lengst af bílstjóri á Hreyfli, var formaður félagsins í langan tíma hann vann allt af miklum heilindum fyrir félagið og var t.d sá sem lagði mikla áherslu á að tölvuvæða bílana og kom þeirri hugmynd í framkvæmd. Hann spilar alltaf brige með félögum sínum og það eru ófá verðlaunin sem hann hefur komið með heim eftir spilakvöld, hins vegar veit ég varla muninn á spaða og ás.Afkomendur hans og tengdabörn eru eitthvað í kringum 50 og því er bæði þröngt á þingi en endalaust gaman þegar við komum öll saman í litla ömmuhúsinu hans og mömmu. Litlu langafabörnin hans kalla hann Langa að eigin ósk og að mér læðist sá grunur að hann sé bara nokkuð stoltur af okkur öllum.

Elsku pabbinn minn, innilega til hamingju með daginn þinn, hlakka til veislunnar sem við efnum til eftir viku svona í tilefni dagsins
Elska þig endalaust
Erlan þín