miðvikudagur, janúar 11, 2006

Fleiri afmæli…


Í jafn stórri fjölskyldu og minni þá eru oft afmæli og bara gaman af því.
Sumarið 2000 vorum við Erling úti á Mallorka og fengum sms frá Örnu dóttur okkar, stutt og laggott “Ég er gengin út, hann heitir Davíð”

Í dag, fimm og hálfu ári síðan að ég heyrði fyrst minnst á Davíð er hann annar af tveimur tengdasonum mínum og pabbi þriggja ömmustelpnanna minna.

Davíð á afmæli í dag, 25 ára gamall, einn aldarfjórðungur að baki hjá þessum unga manni. Davíð er ljúfur og góður drengur, ótrúlega fróður um hin ýmsu málefni og mikill trúmaður. Dætur hans dýrka hann og hann er ólatur að leika sér við þær og sinnir þeim af kostgæfni.

Hann stefnir á að ljúka stúdentsprófi núna í vor og fara í Háskólann í haust að læra sagnfræði en núna með skólanum vinnur hann á heimili fyrir einhverfa drengi og líkar það vel.

Davíð minn, ég óska þér innilega til hamingju með daginn og verð bara að eiga inni að koma í kaffi til þín þegar við Erling komum heim frá Kanarí. Guð blessi framtíð þína og fjölskyldunnar þinnar.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Elsku sætasta og þá meina ég LANGsætasta mamma í öllum heiminum :) Æðislega mikið til hamingju með afmælið :) Njóttu þess nú að láta pabba dekra við þig í dag og hafa það kósí og gott :) Hlakka ýkt til að fá ykkur heim og ykkar er mikið saknað... P.s Skvísa biður að heilsa.. Lov endalaust.. Þín einasta Eygló
Sko klukkan hér er 7 mínútur yfir miðnætti svo að tæknilega séð áttu orðið afmæli en við sjáum til hvenær þetta vistast inn.....

Íris sagði...

Til hamingju með daginn mamma mín!! Gaman að þú getir verið á svona frábærum stað á afmælisdeginum þínum!! Einn galli reyndar á því, við getum ekki hitt þig og óskað þér svona persónulega til hamingju með daginn!
Hlakka mikið til að þið komið heim, skoða myndirnar og svo bara hitta ykkur.
Njótið ykkar vel þarna úti og takk fyrir innlitið á síðuna mína ;)
Þú ert alveg frábær og enn betri mamma ;)
Þín elsta dóttir Íris

Nafnlaus sagði...

Hún á afmæli í dag!
Hún á afmæli í dag!
Hún á afmæli hún mammaaaaa!!
Hún á afmæli í daaaaag!

Hún er 30+ í dag..
hún er 30+ í dag..
Hún er 30+ hún maammmaa!
Hún er 30+ í dag!


Elsku mamma, ótrúlega mikið til hamingju með afmælið, verst að þú ert ekki hérna til að fá pakkann frá mér. :D hehe..
Hlakka rosalega mikið til að fá ykkur heim..
Love you endalaust og skemmtið' ykkur fyrir mig líka þarna úti í sólinni:D

love love
Hrund þessi yngsta;)