föstudagur, september 16, 2005

Dýraskólinn

Eitt sinn fyrir langa löngu ákváðu nokkur dýr að taka sig saman
og drýgja einhverja hetjudáð til þess að mæta áskorun nútímans.
Þau voru sammála um að farsælasta leiðin væri að stofna skóla.
Dýrin tóku upp virka námskrá
sem samanstóð af hlaupum, flugi, sundi og klifri.
Námskráin tók yfir allar athafnir dýranna og
margskonar líkamlega færni þeirra.
Til þess að auðvelda umsjón með námskránni og gæta fylsta réttlætis,
þurftu öll dýrin að leggja stund á allar námsgreinarnar og tóku
ávallt samræmt próf í greinunum.

Öndin var frábær í sundi, meira að segja betri en sjálfur kennarinn,
en hún náði naumlega fullnægjandi einkunn í flugi
og var afar lélegur hlaupari.
Þar sem hún hljóp of hægt var hún látin sleppa sundi
og æfa hlaup í staðinn í sérstökum hlaupsérkennslutímum.
Þessu var haldið til streitu þar til sundfitjaðir fætur hennar
voru orðnir svo sárir að hún átti erfitt með að synda
og varð því aðeins meðalnemandi í sundi í lok annar.
En meðaltal var viðunandi í skólanum svo enginn kippti sér upp við það.
Nema öndin.

Kanínan var í byrjun skólagöngunnar best í hlaupum,
en fékk fljótlega taugaáfall sökum mikils álags við að bæta sig í sundi.
Kanínur og sund eiga illa saman.

Íkorninn var frábær í klifri þar til hann smám saman missti sjálfstraustið
vegna flugtímanna. Kennarinn vildi nefnilega að hann hæfi sig á loft
frá jörðu í stað þess að stökkva af trjákrónunum og niður til jarðar.
Hann fékk líka vöðvakrampa af of mikilli áreynslu.
Í einkunn fékk hann síðan C í klifri og D í hlaupum.

Örninn var vandræðafugl. Reynt var aga hann, en með engum árangri.
Í klifurtímum var hann fyrstur allra að komast efst upp í tréð,
en þrjóskaðist við að nota sína eigin aðferð til að komast þangað.
Hann neitaði algjörlega að nota þá aðferð sem ætlast var til af skólanum
og lenti útí kuldanum.


Í lok skólaársins var það svo kamelljón sem synti allvel
og gat líka hlaupið, klifrað og flogið dálítið
sem fékk hæstu meðaleinkunn og dúxaði þar með í skólanum.
(Höfundur óþekktur)
Hvað lærdóm drögum við af þessari sögu? Það væri gaman að fá umræður hér um það svo látið nú sjást frá ykkur skrif og skoðanir.......

4 ummæli:

Íris sagði...

Við þurfum ekki öll að vera góð í öllu. Við höfum öll okkar hæfileika og eigum að leyfa þeim að njóta sín en ekki hamast við að vera góð í einhverju sem við verðum aldrei góð í!!
Rosalega góð samlíking!!!

Nafnlaus sagði...

Mér finnst þessi pistill afar góður og undirstrikar þá skoðun mína að hver og einn á að einbeita sér að því sem hann er bestur í. Hæfileikar okkar eru svo mismundandi og það er dapurlegt - og skemmir verulega út frá sér - þegar við erum að reyna að vera önnur en við erum. Ekki er það minna dapurlegt þegar umhverfi okkar þrýstir okkur út á braut að vera önnur en við erum sjálf. Við þurfum að þekkja takmörk okkar og vera síðan virðingu fyrir okkur sjálfum og þeim hæfileikum sem við höfum. Þar sem við erum ekki öll með sömu hæfileikana þurufm við síðan á hvort öðru að halda og þannig myndum við sameiginlega sterka heild.

Frábær pistill!

Erling.... sagði...

Skemmtilegur spegill!
Er það ekki þannig að þegar einhver reynir að vera annar en hann er, verður spegillinn spéspegill.

Nafnlaus sagði...

Ég er sammála síðustu ræðumönnum.. Það eru allir góðir á sínu sviði og hinir bæta mann upp... Góður pistill hjá þér mamma mín (eins og alltaf) Hafðu það best.. Þín dóttir Eygló