fimmtudagur, ágúst 31, 2006

Íris afmælisbarn, 28 ára í dag


Húsið var gamalt, veggirnir gulir og vinalegir og starfsfólkið alveg hreint framúrskarandi. Ég var búin að vera með verki sem gerðu ekkert annað en versna í 21 tíma og ég hélt að ég myndi örugglega deyja áður en ég fengi að sjá fyrsta og að mínu mati þá örugglega eina barnið mitt. Nóttin var erfið en svo kom að því….kl 8:35, 31. ágúst 1978, fæddist þessi yndislega stúlka sem alla tíð síðan hefur verið yndi okkar foreldra hennar og hvarvetna verið okkur til sóma. Já ég lifði þetta af og síðan fleiri slíka atburði sem betur fer. Ég man hvað við vorum stolt af henni, kornungir foreldrarnir, og ég gat varla beðið eftir að sýna fólki hana og þegar nýbökuð amman, mamma mín, kom að sjá hana fyrir hádegi sama dag sagði ég við hana; mamma hefurðu nokkurn tímann séð fallegra barn?
Það var eins gott að ég var með eyru því annars hefði höfuðið á mér klofnað í tvennt svo breitt var brosið.

Hún er hörku dugleg, gift og tveggja dætra móðir og stundar nám við lagadeild Háskólans í Reykjavík.

Íris mín, til hamingju með afmælið þitt, ég bið Guð að blessa þig og fjölskyldu þína ríkulega í leik og starfi. Ég elska þig og er mjög stolt af þér

1 ummæli:

Íris sagði...

Elsku mamma mín!!
Takk fyrir þessa skemmtilegu afmælishamingjuósk!! Dagurinn hefur verið góður þrátt fyrir mikla dagskrá ;)
Ég elska þig sömuleiðis rosalega mikið!!
Sjáumst á morgun ;)
Þín elsta dóttir Íris