miðvikudagur, október 17, 2007

Hún á afmæli í dag.....


Hún Þórey Erla, yngsta prinsessan mín á afmæli í dag, hún er orðin tveggja ára daman. Það er alveg merkilegt hvað svona lítil mannvera á auðvelt með að snúa stórum mannverum eins og mér um fingur sér og hefur ekkert fyrir því. Brosið hennar, stóru augun hennar og þegar hún kemur til manns og smellir kossi á mann með stórum smelli, allt þetta er algerlega ómótstæðilegt. Þórey Erla er mjög geðgóð og svo ef hún fer að gráta þá eru stóru systur hennar snöggar að láta okkur hin vita að það þurfi nú að hugga litlu systur.
Það var haldið uppá afmælið hennar í Húsin við ána sl laugardag og það var svo gaman.
Ég er svo rík að eiga 5 litlar (stórar að eigin sögn) prinsessur sem eru allar vinkonur mínar og svo er kominn einn prins sem verður örugglega líka vinur ömmu sinnar.

Elsku Þórey Erla mín, ég óska þér innilega til hamingju með afmælisdaginn þinn, þú ert sannkölluð Guðs gjöf inn í líf okkar allra og ég bið Guð að gæta þín hvar sem þú ferð

2 ummæli:

Eygló sagði...

Til hamingju með minnstu prinsessuna :) Þið eruð svo sannarlega rík að eiga svona æðisleg barnabörn :) Sjáumst hressar sæta mín! Þín uppáhalds Eygló

Nafnlaus sagði...

Takk fyrir kveðjuna til yngstu krúttlunnar minnar. Þú ert alveg frábær mamma og amma:) Sjáumst hressar, eftir nokkrar mínútur. Arnan þín:)