föstudagur, janúar 05, 2007

Svo komu áramót

Á fimmtudegi fyrir áramót hringdi Arna í okkur og sagði okkur að Davíð myndi ekki geta komið suður með litlu stelpurnar á laugardeginum eins og áætlað var en hún átti að hafa þær yfir áramótin. Þórey Erla hafði veikst deginum áður og var komin í rannsókn á spítalanum fyrir norðan. Um kvöldið kom í ljós að það þurfti að leggja hana inn á barnadeild því hún var með smitandi bakteríusýkingu í lungum og með eyrnabólgu. Hún þurfti að fá lyf og næringu í æð og var látin vera í einangrun vegna smithættunnar.

Daginn eftir kom svo í ljós að hún yrði á spítala allavega fram á nýársdag. Nú voru góð ráð dýr því Doris átti að vinna alla hátíðina og Davíð yrði auðvitað með Þórey Erlu á sjúkrahúsinu og því þyrfti helst að koma Daníu Rut og Söru Ísold til mömmu sinnar.

Til að gera langa sögu stutta þá töluðum við Doris saman og það varð úr að við afarnir og ömmurnar keyrðum á móti hvort öðru á laugardegi og við mættumst á Blönduósi og þar tókum við Erling við litlu gullunum og fórum með þær til Örnu sem vissi ekkert af þessu ráðabruggi okkar. Þórey Erla útskrifaðist af spítalanum 2. janúar og Davíð flaug með hana suður og hún er núna hjá mömmu sinni og þær allar mæðgurnar eru alsælar.

Sama kvöld og við fórum norður fórum við svo á tónleika í Laugardalshöllinni með Sálinni og Gospelkór Reykjavíkur en Íris er einmitt meðlimur í þeim kór. Tónleikarnir voru frábærir og ég var mjög stolt af stóru stelpunni minni en hún er mjög lífleg og skemmtileg á tónleikum.

Í fyrsta sinn í mörg ár vorum við heima hjá okkur allt gamlárskvöld. Við erum vön að hitta fólkið mitt heima hjá Ellu Gittu og Katli strax eftir áramótaskaupið en að þessu sinni þá tilkynntum við fjarveru okkar. Við ætluðum að eyða kvöldinu heima í “Húsinu við ána”. Það er auðvitað alltaf gaman að hitta fólkið sitt og ég er reyndar mjög ánægð með hvað við systkinin erum dugleg að hittast en ég naut þess virkilega vel að vera bara heima þetta kvöld með dætrunum öllum, tengdasonum og auðvitað litlu hjartabræðurunum mínum. Þær voru að vísu bara fjórar þar sem Þórey Erla var enn á spítalanum fyrir norðan.

Við erum ekki alveg eins vanaföst með matarhefðir á gamlárskvöld og breytum stundum til og það gerðum við að þessu sinni. Erling bjó til þessa líka snilldar humarsúpu í forrétt og við matarborðið voru hafðar upp háværar kröfur um að þetta væri nú þegar orðin hefð. Lögfræðineminn í hópnum sagði okkur að venja þyrfti að vera viðhöfð í 10 til 15 ár til að kallast hefð og lögfræðingurinn tók undir með henni en okkur var alveg sama :o)
Síðan grillaði Erling lambafille með fiturönd og það verður að segjast eins og er að maturinn var alger snilld. Heimabúinn karamellufromage og heimatilbúinn ís setti svo punktinn yfir iið.

Við horfðum saman á skaupið og svo rétt fyrir miðnætti fórum við niður að ánni og horfðum á flugeldana speglast í henni. Alveg mögnuð sjón.

Rúmlega tólf datt svo Sara Ísold illa niður af stól, lenti á bakinu og hnakkanum, missti andann og var mjög undarleg, eins og hún væri að detta út og svaraði okkur engu. Við hringdum og fengum að tala við lækni hér á Selfossi og þótt Erling væri búinn að hita bílinn til að fara með hana þá vildi læknirinn láta sjúkrabíl sækja hana. Ömmunni fannst þeir nú heldur of lengi á leiðinni en það voru samt bara nokkrar mínútur. Þegar þeir komu og lýstu í augun á henni og sögðu svo: “Við skulum fara með hana út í bíl eins og skot”, þá er ekki laust við að mér hafi brugðið all nokkuð.

Þetta fór þó allt mjög vel, hún hafði fengið heilahristing og fengið áfall og þess vegna talaði hún ekki og mér fannst mjög heimilislegt að sjá þegar sjúkrabíllinn stoppaði aftur fyrir utan húsið okkar seinna um nóttina og þá voru þeir bara að skutla þeim Erling, Örnu og Söru Ísold aftur heim og við áttum bara að vekja hana yfir nóttina. Hún vaknaði svo á nýársdagsmorgun hress og spræk. Það er víst óhætt að segja að hann sé hollur sá sem hlífir.

Ég þakka Guði fyrir varðveislu hans yfir öllu mínu fólki og bið ykkur lesendum mínum Guðs blessunar á nýju ári. Þið ykkar sem hafið áhuga á að lesa um helstu viðburði liðins árs, bendi ég á síðuna hans Erlings en þar hefur hann að venju skrifað áramótapistil www.erlingm.blogspot.com

Þangað til næst.....

4 ummæli:

Eygló sagði...

Ég verð bara að segja fyrir mitt leyti að ég vil sjá karamellifrómasinn í hefð í eftirrétt á gamlárs!! Hann sló heldur betur í gegn, enda svakalega góður :) Maður þyrfti helst að læra að búa hann til og herma! En annars voru áramótin alveg æðisleg, og maturinn virkilega góður og ekki skemmdi frábæri félagsskapurinn, og gott að Sara Ísold gull jafnaði sig fljótt :) Jæja sæta, við sjáumst hressar á morgun í afmælinu hennar Hrundar :) Þín uppáhalds Eygló :)

Nafnlaus sagði...

Já ég tek undir með konunni minni með karamellufrómasinn, hann var geggjað góður. Annars var maturinn MJÖG góður um áramótinn og naut ég þess sko að borða hann. Vonandi verður þessi súpa hefð í framtíðinni. Ég það var notalegt að vera fyrir austan um áramótinn og jólinn í góðum félagasskap.
Takk fyrir mig og sjáumst í afmælinu hjá Hrund.

Kv.
Björn Ingi

Nafnlaus sagði...

Smá leiðrétting

,,Það var notalegt að vera fyrir austan um áramótinn og jólinn í góðum félagasskap,,

Kv.
Björn Ingi

Íris sagði...

Hæ hæ mamma!
Þetta var skemmtileg lesning og e´g er alveg sammála að gamlárs var rosalega skemmtileg og gott að ekkert alvarlegt kom fyrir hana Söru Ísold okkar!
Frábært að þið gátuð sótt stelpurnar hennar Örnu svo þær gætu verið með okkur, alveg meiriháttar!
Og líka gaman hvað ykkur þóttu tónleikarnir góðir!!
Takk svo fyrir samveruna í gær, var rosa gaman!
Sjáumst hressar næst!
kv. Íris