þriðjudagur, maí 06, 2008

Fjölskyldan

Ég er svo endalaust stolt af krökkunum mínum öllum. Þau standa sig vel í lífinu hver á sinn hátt. Íris er að útskrifast sem BA lögfræðingur núna í júní og hefur hvergi hvikað þrátt fyrir að eignast Erling Elí sl sumar og fara inní þriðja árið með kornabarn á brjósti og vera með 2 heimasætur að auki. Hún hefur ekki fallið á neinu prófi og langt frá því, oftast hefur hún verið aðeins nokkrum kommum frá því að komast inná forsetalista Háskólans. Auðvitað gæti hún þetta engan veginn ef hann Karlott væri ekki svona feikna duglegur. Hann hefur verið í hálfu fæðingarorlofi í vetur og verið heima með kútinn fyrir hádegi meðan hún er í skólanum og sinnir öllum heimilisstörfum af mikilli kostgæfni. Að öðru leyti vinnur hann í Landsbankanum og er mjög vel liðinn þar.
Eygló er á fullu að vinna í leikskólanum, hún er núna hálfnuð með meðgönguna og allt gengur mjög vel. Ég hitti samstarfskonu hennar um daginn og hún sagði mér að ég ætti algeran gullmola í henni. Ég vissi það nú alveg :o) Bjössi var að taka sveinspróf í vélvirkjun og vinnur í kælismiðjunni Frost og stendur sig mjög vel. Þau eru svo hamingjusöm bæði tvö og full tilhlökkunar að takast á við nýtt hlutverk sem Guð er að leiða þau inní.
Arna er líka að vinna á leikskóla og er mjög dugleg með litlu dömurnar sínar þrjár en þær eru hjá henni aðra hvora viku og hina vikuna hjá pabba sínum. Hún hefur náð sér mjög vel á strik eftir að leiðir hennar og Davíðs skildu fyrir tveimur árum og sýnir mikinn dugnað við að ná endum saman og halda utanum litlu fjölskylduna sína. Ég átti erindi í vinnuna hennar um daginn og forstöðukonan þar sagði mér að hún stæði sig mjög vel og hefði svo góða nærveru. Var heldur ekki hissa á því.
Eygló og Bjössi eru líka mjög dugleg við að aðstoða hana þegar á þarf að halda og stelpurnar eru mjög hændar að Bjössa. Samband Eyglóar og Örnu er mjög sérstakt og ég held að enginn skilji í raun og veru samband eineggja tvíbura, þessi nána samvera þeirra í móðurkviði er svo sérstök og myndar strax svo mikil tengsl.
Hrund er að ljúka þriðja ári í Kvennó og stendur sig með stakri prýði. Núna stendur yfir mikil prófatörn og hún situr og les á milli þess sem hún fer í próf og tekur sér pásu til að spjalla við uppáhaldsvinkonuna sína, Theuna okkar. Hún hefur alveg náð sér eftir áfallið sem hún varð fyrir enda skynsöm stelpa á ferð og var til í að vinna sig útúr þeim erfiðleikum. Hrund fer að vinna á sambýli hér á Selfossi í sumar og hún er bara spennt yfir því, hún elskar skjólstæðinga sína og ber mikla umhyggju fyrir þeim.
Krakkarnir okkar Erlings eru allir mjög skynsamir í peningamálum og þau þurfa ekki að hafa áhyggjur af því að fara niður með kreppunni, þau eru ekki í því að taka neyslulán, þau aka um á bílum sem þau eiga en ekki bankinn og eyða bara því sem komið er í budduna og það er mikill gæfuvegur.

Ég gæti endalaust sagt ykkur krúttlegar sögur af ömmubörnunum mínum sex en læt það bíða betri tíma, segi ykkur bara að þau eru algerlega ómótstæðileg öll sömul.
Þangað til næst.....

4 ummæli:

Íris sagði...

Já, ég held við séum bara allar að standa okkur ágætlega og líka tengdasynir þínir ;)
Hlakka annars rosalega til að hitta ykkur öll og vera búin í skólanum. Vona að það verði sem fyrst!
kv. Íris

Erla sagði...

Þegar ég tala um krakkana mína þá eru það þið dæturnar og tengdaSYNIR mínir. Elska ykkur öll og hlakka til þegar við hittumst næst. Mamman

Íris sagði...

Veit mamma ;) Meinti þetta ekki þannig :)
Þið eruð líka alveg frábærir foreldrar þú og pabbi og frábærir tengdaforeldrar!

Nafnlaus sagði...

Takk fyrir falleg orð elsku sæta mammslan mín:) Ég er líka svo stolt af þér og takk fyrir að vera alltaf til staðar fyrir mig með öxl, huggunarorð og faðm handa mér. Þú ert æðimamma:) Love U, Arnan þín:)