mánudagur, júlí 24, 2006

Hún á afmæli í dag


Í dag eru fjögur ár síðan ég fékk ömmutitilinn í fyrsta skipti, ótrúlegt hvað tíminn líður hratt. Danía Rut fyllir fjórða árið í dag, þetta litla, stóra yndigull.
Danía Rut er mjög lífglöð og kát stelpa og bræðir alla í kringum sig bara með einu brosi.
Hún er dugleg að nota “Tákn með tali” og hennir fer stöðugt fram og er alltaf að bæta við sig nýjum orðum og nú síðast lærði hún að segja nafnið sitt og það er frábært. Elsku Danía Rut, til hamingju með fjórða afmælisdaginn þinn, þú ert sannkölluð Guðs gjöf til okkar allra. Guð blessi þig nú og um ókomin ár og vaki yfir hverju þínu skrefi.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Takk elsku amma fyrir afmæliskveðjuna..... Þín elsta dótturdóttir, Danía Rut

Nafnlaus sagði...

Tek undir þetta. Hún Danía Rut er frábær stelpa. Bestu kveðjur Kiddi Klettur