fimmtudagur, september 11, 2008

Karlott er 33ja ára í dag, hann lengi lifi........


Eins og ég hef oft sagt ykkur þá er ég svo heppin að vera ættmóðir margra og ég er líka svo heppin að eiga vináttu fólksins míns og fyrir það er ég mjög þakklát. Í stórri fjölskyldu eru því auðvitað oft afmæli og í dag á annar tengdasonur minn og vinur afmæli. Það er alltaf ánægjulegt þegar fólk fyllir eitt árið í viðbót og á því er engin undartekning núna.

Karlott er einstaklega ljúfur og góður strákur og er vel liðinn hvar sem hann kemur. Hann er forfallinn veiðidellukall eins og tengdapabbi hans og svili og mér finnst frábært þegar við erum öll samankomin og þeir „kallarnir“ eru uppteknir við veiðisögur og fleira því tengt.

Karlott og Íris eiga þrjú yndisleg börn saman og þau eru einstaklega samhent í öllu er viðkemur heimilishaldi og uppeldi á börnunum.Karlott nýtur einnig mikillar hylli á vinnustað sínum, Landsbankanum og eru bæði yfirmenn og samstarfsfélagar mjög ánægðir með hann og stendur hann sig með stakri prýði.

Karlott minn, ég óska þér innilega til hamingju með daginn og bið Guð að blessa þig ríkulega. Við Erling erum stolt af þér. Sjáumst sem fyrst....

2 ummæli:

Eygló sagði...

Til hamingju með tengdasoninn :)
Verð líka að kommenta á þessa mynd, glæsileg mynd af glæsilegum hjónum :) Þau eru bæði æðisleg!
Sjáumst hressar annars á eftir sæta mamma :)
Þín Eygló stóra bumba :)

Nafnlaus sagði...

Rétt náði að þakka fyrir kveðjuna...

TAKK FYRIR MIG : )

Sjáumst fljótt!

Þinn tengdasonur nr 1 hehehe