Fjöldi fólks glatar hlut sínum í hamingjunni. Ekki vegna þess að það hafi aldrei fundið hana, heldur vegna þess að það nam ekki staðar til að njóta hennar.
þriðjudagur, desember 06, 2011
Jól á næsta leiti
Skreytum hús með grænum greinum.....nei annars bara öllu fallega jólaskrautinu okkar, það er verkefni dagsins..... Svo kíki ég örugglega útí búð seinna í dag því Erling er þar að breyta ísbúðinni og vinna við innréttingu hennar. Þetta verður góður dagur og já.....Fréttablaðið var á eldhúsborðinu......
föstudagur, desember 02, 2011
Katrín Tara afmælisstelpa
miðvikudagur, október 26, 2011
Hann á afmæli í dag
mánudagur, október 17, 2011
Þórey Erla afmælisskvísa

þriðjudagur, október 04, 2011
Erla Rakel afmælisstelpa...
sunnudagur, september 11, 2011
Karlott afmælisbarn
Það er stutt á milli afmæla þeirra hjónakorna Karlotts tengdasonar okkar og Írisar en í dag fagnar hann afmælinu sínu í 36. sinn.
Karlott er einstaklega ljúfur og góður drengur og hvers manns hugljúfi. Glaðvær og á einstaklega auðvelt með að umgangast fólk og spjalla við það. Hann studdi Írisi með ráð og dáð meðan hún lagði stund á lögfræðinámið sitt og nú er komið að honum og fyrir nokkrum dögum hófst nýr kafli í lífi hans þegar hann settist á skólabekk í Háskóla Íslands og nemur félagsráðgjöf. Þar er hann sannarlega á réttri hillu og ég efast ekki um að honum á eftir að ganga vel í þessu námi og hafa gaman af því.
Íris og Karlott eiga 4 yndisleg börn saman og eru einstaklega samhent um allt er viðkemur heimilishaldi og barnauppeldi. Börn hænast að Karlott og ég hef ósjaldan séð fleiri en hans börn trítla við hlið hans í leit að spennandi ævintýrum úti í náttúrunni þegar við stórfjölskyldan erum samankomin, annað hvort í Kofanum eða í einhverju ferðalaginu.
Karlott er haldinn mikilli veiðibakteríu og ég hef grun um að hann hafi ekki áhuga á að læknast af þeirri bakteríu.
Elsku Karlott, við Erling sendum þér afmæliskveðju héðan frá Tíról og óskum þér innilega til hamingju með daginn þinn, við erum afar ánægð með þig og stolt af þér og við vitum að Íris og börnin munu dekra þig í dag. Sjáumst svo vonandi sem fyrst.
þriðjudagur, ágúst 30, 2011
Íris afmælisstelpa
þriðjudagur, ágúst 23, 2011
Petra Rut afmælisgull
sunnudagur, júlí 24, 2011
Danía Rut afmælisskvísa
Í dag eru liðin níu ár frá því að ég fékk ömmutitilinn í fyrsta sinn. Við vorum að koma úr ferðalagi og komin til Akureyrar og vorum frekar spennt því samkvæmt dagatalinu átti barnið að vera fætt. Það var svo aðfaranótt 24. júlí sem skvísan kom í heiminn og við Erling þar með orðin afi og amma. Daníar Rut, sem í dag fagnar 9 ára afmælinu sínu, hefur alla tíð verið mikill gleðigjafi í lífi okkar og þrátt fyrir veikindi í byrjun þá er hún við hestaheilsu í dag, afar hress og skemmtileg stelpa. Danía Rut greindist einhverf þegar hún var 5 ára en þar sem hún er ekki með neina þroskaröskun Þá gengur hún í venjulega skóla og fær þar smá aðstoð. Hún er með það alveg á hreinu hvers vegna hún er einhverf eins og sést á þessu sem ég tók af síðunni hjá mömmu hennar: "Við sátum við morgunverðarborðið þegar Danía Rut segir allt í einu bara alveg upp úr þurru..stelpur vitiði hvað, þegar Jesú var að búa mig til þá setti hann vitlausan heila í mig og þess vegna er ég einhver. Stelpurnar voru ekki alveg að samþykkja þetta svo daman hélt áfram og sagði, sko Guð hann fór niður og sótti öðruvísi heila og setti í mig og þess vegna er ég einhverf. Þótt hlutirnir geti verið erfiðir að skilja þegar maður er einhverfur þá skilur daman þetta allavega mjög vel og er komin með sína eigin skýringu á einhverfunni sinni " miðvikudagur, júní 22, 2011
Bjössi afmælisbarn
föstudagur, júní 03, 2011
Stóri prinsinn orðinn 4ra ára

Ég er þeirrar skoðunar að allir dagar sem við fáum úthlutað séu merkisdagar en þó eru auðvitað sumir dagar miklu merkilegri en aðrir. Í dag er einn af þeim dögum. Við Erling erum svo lánsöm að vera umkringd barnabörnum og í dag er eldri prinsinn í hópnum orðinn fjögurra ára gamall. Erling Elí fæddist á fallegum sunnudegi fyrir fjórum árum og varð strax einn af augasteinunum okkar afa síns og ömmu. Þessi litli stóri yndis drengur er flottur og duglegur strákur, alger prakkari og grallaraspói sem bræðir alla sem eru kringum hann en hann er sérstaklega hændur að Erling afa sínum og í hvert sinn sem ég kem ein í heimsókn til þeirra er ég varla komin inn þegar hann spyr um afa sinn og bara gaman af því. Erling Elí er sannur strákur og alger bíladellukall, elskar allt með mótora, geimflaugar og allt svona ekta stráka dót. Um daginn var hann hjá okkur og vildi endalaust hafa afa sinn með sér í að skoða jeppa í tölvunni og svo vildi hann sjá flott bíla DVD sem hann á.
Elsku Erling Elí minn, við afi þinn sendum þér bestu hamingjuóskir með daginn þinn og við hlökkum til að koma í veisluna þína. Þú ert alger Guðs blessun í líf okkar og við erum Guði þakklát fyrir þig. Láttu alla dekra við þig sem aldrei fyrr. Við elskum þig milljón hringi og aðeins fleiri líka litli stóri strákurinn okkar.
mánudagur, maí 16, 2011
Hann á afmælisdag.....hann lengi lifi

laugardagur, apríl 09, 2011
Elsku pabbinn minn
laugardagur, mars 12, 2011
Mamma mín afmælisskvísa
Elsku besta og yndislega mamman mín á afmæli í dag, 71 árs skvísan þótt það trúi því enginn enda er hún svo ungleg þessi elska. "Hvaðan kemur hún mamma þín eiginlega" var ég spurð að um daginn. "Hún kemur frá himnum enda alger engill" svaraði ég. "Já það hlýtur að vera því það fylgir henni svo sérstakur andi og mikill friður og ró" sagði þá spyrjandinn við mig. "Henni er svo annt um alla og er ekki bara að hugsa um sitt fólk heldur virðist hún hafa tíma fyrir alla".miðvikudagur, mars 02, 2011
Þrítugar afmælisstelpur
Við eldhúsborðið í gærkvöldi vorum við Erling að rifja aðeins upp tímann fyrir 30 árum og 4 mánuðum síðan og það sem allt hefur breyst. Við áttum von á okkar öðru barni og í mæðraskoðun, þá komin 5 mánuði á leið, vildi ljósan endilega senda mig suður í sónar. Við bjuggum á Akranesi og þá tíðkaðist ekki að allar konur færu í sónar, bara ef eitthvað var öðruvísi en átti að vera. Ljósan sagði við mig að hana grunaði að ég væri gengin lengra með barnið en blæðingar sögðu til um. Eftir á að hyggja er ég viss um að hana grunaði ástæðu þess að legið var miklu hærra uppi en hún orðaði það samt ekki við mig. Ég fór því suður með Akraborginni og tók Írisi með en það tíðkaðist ekki heldur að feður færu með í sónar. Við áttum engan bíl svo við mæðgur gengum niður að höfn og svo tók mamma, þessi elska, á móti okkur í borginni og keyrði mig á spítalann í sónar og beið frammi á meðan með litlu dömuna okkar. Hún sagði mér svo seinna að ég hefði verið hvítari en hvítt lak þegar ég kom fram frá lækninum og sagði ekki margt annað en að hún hafði haft rétt fyrir sér, börnin væru tvö. Þar sem við áttum heldur ekki síma höfðum við ákveðið að Erling færi á símstöðina í hádegishléinu og myndi hringja í mig til að vita hvað hefði komið út úr sónarnum. Þótt mamma mín væri búin að segja við mig að henni kæmi ekki á óvart að börnin væru tvö þá trúði ég henni aldrei og fannst það mjög fjarstæðukennt. Hvað um það, Erling var einmitt að rifja það líka upp í gær þegar hann stóð í símaklefanum utan við símstöðina og fékk fréttirnar. Hann sagði ekkert, og þá meina ég ekkert, í svona eina mínútu. Þetta var nett sjokk fyrir okkur enda vorum við bara tvítug og Erling í námi en svo leið meðgangan og við vorum orðin mjög spennt þegar þær létu svo sjá sig stelpurnar okkar.Mér finnst ótrúlega stutt síðan þetta var en engu að síður er það staðreynd að í dag fagna Eygló og Arna, tvíburadætur okkar 30 ára afmælinu sínu. Þær munu samt ekki vera hrifnar af mér að tala um þær sem tvíbura. Þær elska að vera tvíburar en það má ekki tala um þær sem slíkar enda eru þær tveir sjálfstæðir einstaklingar þótt við stríðum þeim stundum með þeirri staðreynd að þær eru líffræðilega nákvæmlega eins. Auðvitað eru þær samt ekki eins en þær eru ótrúlega samrýmdar og það er einhver óskiljanlegur þráður milli þeirra. Þeim dreymir jafnvel sömu drauma sömu nótt og stundum kaupa þær alveg eins gjafir handa hvor annarri án samráðs. Ég held reyndar að einungis eineggja tvíburar geti skilið þessi tengsl sem eru þarna á milli.
þriðjudagur, febrúar 15, 2011
Sara Ísold 7 ára afmælisprinsessa
Í dag eru sjö ár síðan þriðja barnabarn okkar Erlings leit dagsins ljós norður á Akureyri. Við höfðum fylgst með gangi fæðingarinnar alla nóttina gegnum símtöl frá örnu og svo var það snemma á sunnudagsmorgni sem við fengum símtalið um að dóttir væri fædd og allt í lagi með þær mægður. Já hún Sara Ísold vinkona okkar er sjö ára í dag og er búin að bíða lengi eftir þessum degi. Hún er mjög dugleg stelpa og ákveðin, löngu orðin læs og dugleg að skrifa. Hún er kát og skemmtileg en ef henni mislíkar eitthvað þá hikar hún ekki við að láta okkur vita af því. Brosið hennar heillar mann algerlega og blikið í augunum er ómótstæðilegt.laugardagur, janúar 08, 2011
Hrund afmælisprinsessa

föstudagur, desember 03, 2010
Katrín Tara afmælisstelpa

sunnudagur, október 31, 2010
Tilvera okkar er undarlegt ferðalag.....
Við spjölluðum smástund og eftir að hafa kvatt hana og lagt á þá var ég þungt hugsi. Hugur minn var allur hjá Kibbu og fólkinu hennar og ég veit að þau eru samheldin og Kibba nýbúin að vera í Noregi í heimsókn hjá þeim. Það er svo stutt á milli gleði og sorgar og við erum ekki viðbúin því að eitthvað hendi okkur eða okkar fólk. Og hugsanir mínar héldu áfram. Hvernig kem ég fram við fólk, hvernig met ég það sem ég á, nýti ég tímann til að njóta þess að eiga vini og fjölskyldu og þannig get ég haldið áfram.
Í dag erum við Íslendingar að ganga í gegnum erfiða tíma, erfiðleika sem okkur datt ekki í hug fyrir örfáum árum að myndi yfir okkur ganga. Erfiðleika sem fæst okkar hafa til unnið heldur erum við að gjalda fyrir gerðir örfárra manna sem með græðgi og yfirgangi hafa sett íslenskt efnahagskerfi á hliðina. Ég ætla ekki að gera lítið úr þessum erfiðleikum því þeir eru vissulega miklir. Ég veit þó að núna sem aldrei fyrr er það nauðsynlegt fyrir okkur að horfa á allt það jákvæða sem við eigum í mannauð okkar Íslendinga því við erum hörkudugleg þjóð og eigum eftir að sigla uppúr þessum erfiðleikum og standa betur að vígi en áður. En við verðum að standa saman, efla fjölskyldugildin, efla vináttuna og samstöðuna og vera jákvæð.
Á þessum tímum er það okkur líka nauðsyn að fara í naflaskoðun og skoða hvað er dýrmætast og þess virði að halda áfram.
Í gær tók ég ákvörðun.
Ég vil keppa að því að njóta hversdagsins, njóta litlu óvæntu stundanna, njóta stóru skipulögðu stundanna og bara að njóta þeirra forréttinda sem mér voru gefin í fjórum frábærum dætrum, þremur yndislegum tengdasonum og ömmugullunum mínum sjö og þessi tvö sem enn eru bumbubúar. Að ég tali ekki um manninn minn sem er besti vinur minn og sálufélagi. Svo á ég yndislega foreldra sem vilja allt fyrir mig og mitt fólk gera, ég elska þau.
Ég ætla að vera duglegri að segja fólkinu mínu hvað ég elska þau, segja stelpunum mínum hvað ég er stolt af þeim og því sem þær eru að fást við hverju sinni. Ég ætla að vera meira til staðar, leiðbeina og hvetja áfram því ég er svo þakklát fyrir að eiga fjölskyldu. Ég er þakklát fyrir óhreint leirtau í vaskinum og óhrein föt í þvottakörfunni því það merkir að það er líf á heimilinu.
Ég nýt þess að eiga litla Kofann okkar í sveitinni og þar er allt sem þarf þótt fermetrarnir séu ekki margir enda fátt notalegra eða rómatískara en logarnir sem loga í kamínunni.
Ég ætla að nota flottu bollana mína hvenær sem ég vil, ég á ekki neitt spari ilmvatn því ég vil bara nota það besta alltaf. Ég ætla vera duglegri að heimsækja fólkið mitt og vini, droppa inn smástund án þess að gera boð á undan mér svo varið ykkur bara þið sem lesið. Heimsóknir hafa alltof mikið dottið niður því við erum jú "öll svo upptekin". Í stuttu máli sagt, ekki geyma eitthvað þangað til betra tækifæri gefst því ég get ekki verið viss um að það komi.
Ég hef einsett mér að njóta hverrar einustu mínútu í lífinu því lífið sjálft er stórkostleg gjöf sem okkur er gefin TIL AÐ NJÓTA.